Wednesday, July 26, 2006

Halló fólk

Ég ætla að gerast svo djörf að blogga svona til tilbreytingar!
Lífið hér í Köben gengur sinn vanagang...Blankheit og ströggl að sjálfsögðu en gleði umfram allt.Er búin að vera að vinna eins og moðerfokker í mánuðinum en það er mjög fínt í vinnunni! Stelpurnar eru alveg yndislegar og ber þar helst að nefna hana Sóleyju sem er svo sannarlega búin að vera mér innan handar í að koma mér inn í alla hlutina sem eiga að gerast í eldhúsinu okkar á Floras. Svo er hún Julie algjör moli og er búin að vera rosa þolinmóð við mig þegar ég er að reyna að tala móðurmál hennar. Því miður eru þær samt báðar að fara að hætta í vinnunni og fara í nám:( Svona er þetta. Það er ekki á allt kosið. Ég er hins vegar mjög bjartsýn á að geta leyft mér að lifa ögn hærra á ágúst en ég er búin að gera í júlí. Jafnvel get ég keypt mér e-r föt! JEI!

En það er meira spennandi að fara að gerast í ágúst. Hinir ýmsu gestir munu stinga inn nefinu og ber þar helst að nefna mína elskulegu systur og mág. Þá næ ég kannski að túristast e-ð sjálf.

Annars bara mega stuð alltaf á stevnsgade og allir í góðum húmor og stundum súrum eins og bloggið okkur gefur kannski til kynna(stevnsgade39.blogspot.com). Við erum hins vegar búnar að reka okkur á það að við lifum í svolítið mismunandi lífsmynstri. Birna greyið þarf alltaf að fara á fætur fyrir allar aldir á meðan við hinir sauðirnir sofum oftast til hádegis og erum meiri nátthrafnar...Staðreynd: það er skemmtilegra að fara á skrallið hér í Köben á virkum dögum heldur en um helgar, þó sérstaklega á fimmtudögum.... bara svona useless information...og þó...

Ég held ég geti fullyrt að ég hafi aldrei lifað eins miklu meinlætalífi og hér. Hér er ekkert sjónvarp né útvarp og því verðum við alltaf að notast við tölvuna ef við viljum komast í samband við umheiminn, sem er bara fínt. Lesum bara meira fyrir vikið..

Ætla ekki að hafa þetta mikið lengra að sinni,er að fara að vinna tidligt i morgen

Chao.