Friday, June 09, 2006

Dvölin í Baunalandi..

..er alls ekki sem verst!
Ég kom síðust af stelpunum sl.föstudag og allt gengur enn mjög vel. Nálægðin er óneitanlega mikil og mjög persónuleg samskipti svo ekki sé meira sagt..
Íbúðin er mjög fín en hún bar þess bersýnileg merki að hér bjó þrítugur piparsveinn á undan okkur en þad er ekki undan neinu ad kvarta. Staðsetningin er líka frábær, á Norðurbrú, Soho Kaupmannahafnar og við búnar ad kanna nágrennið í þaula og allt lofar góðu. Svo tekur þad okkur bara um hálftíma ad ganga nidur í bæ.
Hins vegar erum vid alveg ad reka okkur á það er ekki ókeypis ad reka heimili fyrir fjóra fullorðna! Ó Nei! Erum einnig búnar vera þræða kaffihús og veitingastaði í leit ad atvinnu og er ég ad bíða eftir svari frá The Laundromat Café sem Frikki Weiss og félagar reka og ég bind vonir mínar við ad fá það. Annars ef allt fer fjandans til fæ ég mér e-a skítavinnu í smá tíma. Mer er alveg sama, ætla bara halda þad út í þennann tíma sem ég var búin ad ákveða ad vera hérna, þ.e. út nóvenber og mér mun takast þad!!
Ég ætla ad reyna ad vera aktív ad skrifa en annars munum við stelpurnar,ég,Guðný, Valdís og Birna halda úti bloggi undir nafninu stevnsgade39.blogspot.com. Tsjékkið á því!

Hej,hej!!!