Monday, May 15, 2006

Sólarsamba

Þad sér fyrir endann á þessu erfida tímabili. Adeins tvö próf eftir og þau bara munnleg. Tók þó eitt gott tremmakast i gærkvöldi.Hélt ad gedheilsan væri fokin út í vedur og vind en svo var ekki, sem betur fer. Nú eru hins vegar bjartir tímar framundan og fagnandi tek ég á móti sumrinu(sem er nú víst löngu komid) sem ber vonandi med sér sól, blídu og hamingju....

En eitt skref í einu..

Útskriftin verdur frá Háskólabíói föstudaginn 26.maí kl.14. Þad er alveg merkilegt hversu oft sömu ritgerdarefni birtast á prófum. Mér finnst eins og ég sé búin ad skrifa sömu ritunina, um árin mín í MR, á öllum tungumálaprófunum sem ég hef tekid núna. Já..ætli þad stemmi ekki bara. En í þessum ritunum mínum hef ég farid í minningaferdalag í gegnum skólagöngu mína í MR. Svei mér þá ef ég á ekki eftir ad sakna hans eilítid. Og þó.. þad er alveg kominn tími til ad breyta um umhverfi. Kveð þó med trega.

Ég hef ákvedid ad gerast mjög tönnud í sumar. Já, Valdís, þetta er sko áskorun!

Ble..