Thursday, October 05, 2006

Hæ allir!

Ég er á lífi! Ég er bara einn slæmur bloggari! Og já mín góða fjölskylda, Ég er enn á lífi!
Annars lítið að frétta, nema það að Birna er farin heim og Guðrún Elsa komin í staðinn.

Kv.Chris

Tuesday, August 08, 2006

Ok eg er buin ad sætta mig vid ad engin lesi bloggid mitt nema Særun sem er mer ævarandi tru . A eg kannski bara ad hætta thessu rugli? Ef engin svarar skynja eg thad sem ja.

Ein bitur.

Wednesday, July 26, 2006

Halló fólk

Ég ætla að gerast svo djörf að blogga svona til tilbreytingar!
Lífið hér í Köben gengur sinn vanagang...Blankheit og ströggl að sjálfsögðu en gleði umfram allt.Er búin að vera að vinna eins og moðerfokker í mánuðinum en það er mjög fínt í vinnunni! Stelpurnar eru alveg yndislegar og ber þar helst að nefna hana Sóleyju sem er svo sannarlega búin að vera mér innan handar í að koma mér inn í alla hlutina sem eiga að gerast í eldhúsinu okkar á Floras. Svo er hún Julie algjör moli og er búin að vera rosa þolinmóð við mig þegar ég er að reyna að tala móðurmál hennar. Því miður eru þær samt báðar að fara að hætta í vinnunni og fara í nám:( Svona er þetta. Það er ekki á allt kosið. Ég er hins vegar mjög bjartsýn á að geta leyft mér að lifa ögn hærra á ágúst en ég er búin að gera í júlí. Jafnvel get ég keypt mér e-r föt! JEI!

En það er meira spennandi að fara að gerast í ágúst. Hinir ýmsu gestir munu stinga inn nefinu og ber þar helst að nefna mína elskulegu systur og mág. Þá næ ég kannski að túristast e-ð sjálf.

Annars bara mega stuð alltaf á stevnsgade og allir í góðum húmor og stundum súrum eins og bloggið okkur gefur kannski til kynna(stevnsgade39.blogspot.com). Við erum hins vegar búnar að reka okkur á það að við lifum í svolítið mismunandi lífsmynstri. Birna greyið þarf alltaf að fara á fætur fyrir allar aldir á meðan við hinir sauðirnir sofum oftast til hádegis og erum meiri nátthrafnar...Staðreynd: það er skemmtilegra að fara á skrallið hér í Köben á virkum dögum heldur en um helgar, þó sérstaklega á fimmtudögum.... bara svona useless information...og þó...

Ég held ég geti fullyrt að ég hafi aldrei lifað eins miklu meinlætalífi og hér. Hér er ekkert sjónvarp né útvarp og því verðum við alltaf að notast við tölvuna ef við viljum komast í samband við umheiminn, sem er bara fínt. Lesum bara meira fyrir vikið..

Ætla ekki að hafa þetta mikið lengra að sinni,er að fara að vinna tidligt i morgen

Chao.

Saturday, July 01, 2006

Halló skralló!

Lífið er dásamlegt. Er að vinna á fínum stað og yfirmaðurinn minn er algjört yndi. Reyndar er hann algjör djóker en þar sem ég skil ekki danskan húmor hlýt ég að virka mjög leiðinleg. Það er nógu erfitt að tala dönsku allan liðlangan daginn og er orðin svakalega ryðguð en að maður eigi nú að fatta brandarana! Ja þarna fóru Danirnir alveg með mig! Annars gengur vel að flippin' burgers og annað slíkt, fyrir utan nokkra skurði á höndum og brunasár.... Annars er kokkur að vinna á Floras cafe sem er í meira lagi fyndinn. Hann er frá Jamaica en hefur búið hér í 10 ár! Hins vegar talar hann ekki stakt orð í dönsku!

Nú fer að ganga í garð mikill heimsóknartími og fyrstur til að ríða á vaðið er Óskar kærasti Birnu. Svo koma mamma og sysir Valdísar. Í byrjun ágústmánaðar koma svo Rakel mín kæra systir og Nonni minn og ég hlakka ekkert smá til. Þá getur þaður kannski farið að upplifa borgina smávegis sem túristi. Ég vona svo að mamma komist í ágúst líka þar sem hún elskar Köben! Og mig líka að sjálfsögðu...:)

En ekki svo góðar fréttir af klósetti heimilisins! Niðurfallið er stíflað! OJJJJJJJJJJJJJ!!!!!!

Þar sem að ég er latur bloggari nenni ég ekki að skrifa meira í bili því ég hef ekkert að segja...
Hins vegar sá ég Hallgrim úr Örnen, danska þættinum!!!

Kveðja,
Kristín.

Tuesday, June 27, 2006

Jæja. Nú er liðinn dágóður tími síðan ég bloggaði síðast...
Það hefur svo sem ekki mikið á daga okkar drifið síðustu vikuna. Sú ánægjulega þróun er að eiga sér stað að við stelpurnar erum allar byrjaðar að vinna sem er bæði gott og slæmt. Höfum gert okkur grein fyrir því að innan hópsins hefur myndast ansi súr húmor sem er ekki fyrir alla að fatta! Við þurfum svo sannarlega að blanda geði við annað fólk núna, sem hefur reyndar gerst á síðustu dögum. Íslendingarnir eru að flykkjast til landsins á hátíð kennda við Hróarskeldu og hafa þeir nokkrir orðið á vegi okkar. Hittum við Jorra,Villa,Nonna,Hilla,Inga,Hauk og Gunna AKA Þynk-Gunna. Það var alveg ótrúlega gaman að hitta þá. Í dag koma Guðrún Elsa og Erla svo það verður nóg að gera hjá manni að mingla við fólk á næstunni....

Vinnan mín er alveg ótrúlega fín. Byrjaði reyndar á því að brenna mig illa á hægri handleggnum því ég, Klaufinn, rak hendina í pönnuna. Sumir eiga kannski erfitt með að trúa því sem á eftir kemur en ég vinn sem KOKKUR! Jább, á dauða mínum átti ég von en að ég myndi gerast kokkur e-s staðar er ofar mínum skilningi! En annars gengur bara vel og engin stórslys. Matseðillinn er fremur auðveldur og ég verð fljót að komast upp á lagið með þetta.


Ég varð fyrir fremur óskemmtilegri lífsreynslu á föstudaginn með Guðnýju. Ég hefði fylgt henni á veitingastaðinn sem hún er að vinna á og við vorum í fyrra fallinu og settumst því á tröppur sem voru fyrir framan e-d hús og vorum bara að spjalla. Í því labbar eldri maður af austurlenskum uppruna framhjá okkur. Eftir að hafa gert það nam hann staðar sneri við og muldraði e-ð við okkur sem við skildum ekki. Skipti hann því yfir á ensku og spurði: Do you want sex? OJJJJ! að sjálfsögðu neituðum við HNEYKSLAÐAR! Í alvörunni, ég get alveg sagt það og staðið við það að ég og Guðný lítum EKKI út eins og vændiskonur.En svo kemur reyndar á móti að veitingastaðurinn er á hliðargötu af Istedgade...

Gaman ad þessu krakkar mínir

En leiter...

Saturday, June 17, 2006

Hvordan har I det?

Jæja,jæja
Í dag fór ég í prufu á kaffihúsinu Floras kaffe sem er á Vesterbrogade og það gekk bara nokkuð vel! Vona innilega að ég sé komin með atvinnu hér í Kaupmannahöfn! Þetta er ekki svo frábrugðið því sem ég var að gera á Súfistanum en ég er jú vissulega að tala annað tungumál núna, er smá ryðguð í dönskunni en það kemur allt saman. Er búin að hitta ótrúlega mikið af nýju skemmtilegu fólki og líkar vel. Er búin að komast að því að það er alltaf gott að eiga góða að í útlöndum sem eru manni innan handar! Hins vegar er lítilll sjéns að maður komist á Roskilde festival úr þessu þar sem það er uppselt. Það er víst hægt að kaupa dagspassa á sunnudeginum en mér finnst bara ekki nógu spennandi að vera að gerast þá, því miður. Svona er þetta þegar auraleysið er alveg að fara með mann. En maður verður bara að súpa seyðið af því! Ég er samt ótrúlega ánægð með lífið.....
Chao,
Chris.................

Thursday, June 15, 2006

blogg í köben

Ég get ekki annað sagt en ég hafi það frábært hér í kóngsins Köbenhavn!
Hér er ég með bestu vinkonum mínum og allt er að komast í fastar skorður með vinnu og slíkt. Er að fara í prufu á kaffihúsi sem heitir Floras Caffee á lau. og er á Vesterbrogade niðrí bæ. Líst mjög vel á þetta allt saman og þetta verður enn frábærara þegar hlutirnir eru komnir á réttan kjöl. Ekki það að okkur veitti að smá fríi eftir stúdentsprófsgeðveiki en allt er gott í hófi. Veðrið er búið að vera æðislegt og við Valdís búnar að vera virkar í að vörka tannið í Örestedsparken síðustu daga og gengur bara nokkuð vel. Eins mikið og ég sakna margs að heiman, eins og minnar elskulegu fjölskyldu minnar og vina, þá sakna ég þess ekki mikið að fara að skemmta mér niðrí bæ og borga morðfjár í hvert skipti sem mig langar að fá mér einn bjor!
Lífið er gott í Köben!